Helgi Hrafn Halldórsson

http://www.helgihrafn.net/

Einstaklings vefur um líf mitt og áhugamál, Helgi Hrafn Halldórsson. Hér er að finna ljósmyndir, forritun, tölvur, blog og annað sem Helgi Hrafn skrifar um. Helgi Hrafn er tölvunarfræðingur og starfar sem forritari hjá húgbúnaðarhúsi á Akureyri sem sérhæfir sig aðalega í veflausnum.

Flýtilyklar

Efni

Loksins eftir 15 ár

07.09.2008 15:05 - 515 lestrar - 7 comment

hhh_0264_470

Jamm það er langt síðan þessi hópur hefur allur komið saman. Myndin er tekin í brúðkaupsveislu Hannesar í gærkvöldi (06. sept 2008). Æðislegt brúðkaup og ótrúlega skemmtileg veisla. Eins og sjá má brosir allur hópurinn eyranna á milli. 


Eyþór Ingi vann .. BESTUR

18.04.2008 23:52 - 1075 lestrar - 2 comment

Hann Eyþór Ingi var lang flottastur. Við hjónin vorum í sjónvarpssal og þetta var ótrúlega gaman. Eyþór átti salinn .. það var hrópað "Eyþór, Eyþór .. " í hvert skipti sem hann kom á svið.

Til hamingju Eyþór, og fjölskylda!

Svona í tilefni dagsins .. Cool (btw. tekið á símanum mínum)

 


Netumferð dregst saman

21.11.2007 22:19 - 1296 lestrar - 2 comment

i95traffic100103_120 Það vita flestir að "samfélagsvefurinn" torrent.is er lokaður, eða búið að leggja hann niður eftir að eigandi Istorrent ehf var heimsóttur af lögreglunni og lögfræðingi mánudaginn sl. Skv. frétt á Vísi segir að netumferð hafi dregist saman um allt að 75% undan farna daga, allt út af því að torrent.is er lokaður. Þetta finnst mér ekkert skrítið, þegar næstum 10% þjóðarinnar (held að prósentu talan á torrent.is hafi verið kominn nálægt 8% um daginn) er að sækja sér sjónvarðsþætti sem eru um 350Mb, og allt í einu hverfur öll sú umferð. Við erum að tala um 24.000 manns allir að sækja og deila 350Mb skrá á sama tíma. Síðan má ekki gleyma öllu öðru sem er í umferð líka, þetta er nottla ekki bara ein skrá í einu. Cool

En hvað með það allt saman .. þá finnst mé rþetta ekkert skrítið að umferðin dagist svona mikið saman. Spurning bara hversu mikið af þessari umferð fór í utanlands niðurhal. Money mouth


Sýndarvélin Dalvik

20.11.2007 16:27 - 1202 lestrar - 1 comment

Sumir hafa fylgst með fréttunum um að Google er að gera hugbúnað fyrir síma. Einn starfsfélagi minn bennti mér á það að sýndarvélin hjá Android , sem er nafið á verkefninu hjá Google, heitir því fallega nafni Dalvik. Þessi sýndarvél er hönnuð og forrituð af manni að nafni Dan Bornstein, og gaf hann vélinni þetta nafn þar sem forfeður hans bjuggu á Dalvík.

Þetta ætti nú vonandi að koma Dalvík á alheimskortið, kannski við förum að sjá nýjan punkt á heims atlasinu bráðum.Cool

Heimildir:


Tölvur í viðgerð

17.10.2007 16:53 - 1293 lestrar - 1 comment

damagedcomputer_150Jamm núna er mar með 4 tölvur heima hjá sér í viðgerð, og svo þarf mar að fara í heimahús í kvöld að kíkja á þá fimmtu. Það má alveg segja að mar hafi nóg að gera, fyrir utan þetta er ég að fara að gera vef fyrir Félag Leiklistarnema á Íslandi (leiklistarnemar.is). Alltaf nóg að gera .. sem betur fer Money mouth

 

 


Árshátíð Stefnu og Þekkingar 2007

07.10.2007 16:20 - 1173 lestrar - 0 comment

Við hjónin fórum á árshátíð Stefnu og Þekkingar sem var haldin á Hótel Sel austur á Mývatni þetta árið. Þetta var ótrulega skemmtileg helgi. Við fengum góðan mat, skemmtilegir, ljótir hálfvitar voru með skemmtidagskrá og svo má ekki gleyma ratleiknum.

En til þess að skoða nokkrar myndir smelltu þá hér.

 


Nokkrir nýjir sjónvarpsþættir

01.10.2007 15:15 - 1122 lestrar - 0 comment

Jamm nú þegar sjónvarps þættirnir fara allir af stað í USA er gott að lista upp nokkra nýja sem lofa góðu.

Leikarahópurinn í ReaperLeikarahópurinn í Reaper
  • Bionic Woman 3/5 - sci-fi/drama
    Kona sem lendir á árekstri og það þarf að setja á hana nýja hendi, fætur, eyru og eitt auga. Þá verður hún ofur kona.
  • Reaper 3.5/5 - gaman
    Foreldrar stráks selja sál hans til djöfulsins þegar hann var yngri. Þegar hann verður 21 árs verður hann 'bounty hunter' fyrir kölska.
  • Tell Me You Love Me 3/5 - drama
    Fjögur pör sem eru á mismunandi stað í lífinu og hvert um sig eru að vinna á vandamálum sínum.
  • Big Bang Theory 3.5/5 - gaman
    Nördar í blokk fá nýjan nágranna. Hot stelpa sem verður vinkona þeirra.
  • Chuck ?/5 - gaman
    Strákur sem horfir á myndband frá einhverri leyniþjónustu í USA. En myndbandið er síðan eyðilagt. Það sem strákurinn uppgötvar hægt og rólega er að myndbandið innihélt fullt af leyndarmálum og verður strákurinn mikilvægur meðal leyniþjónustanna.
  • Corner Gas ?/5 - gaman
    Smá svona Næturvaktin fílingur í þessari. Bær einhver staðar út í rassgati þar sem lífið snýst um allt sem gerist á kaffiúsinu eða á bensín stöðinni.
  • Californication 4/5 - gaman/drama
    Rithöfundur sem á mörgun vandamálum að stíða. Sefur hjá of ungri stelpu sem er fósturdóttir fyrrverandi kærustu hans. Þau eiga svo sjálf dóttur sem er um 12 ára. Margt að gerast og sumt frekar sjúkt.
  • Journeyman 3/5 - sci-fi/drama
    Maður sem fer allt í einu að ferðast fram og til baka í tíma. Hann veit ekki hvernig hann gerir þetta, en hverju ferðalagi fylgir ákveðið verkefni sem hann þarf að leysa til að komast til baka.
  • Private Practice ?/5 - drama
    Addison (Kate Walsh) úr Grey's Anatomy vinnur ekki lengur í Seatle og er farin að vinna á einkarekinni læknastofu.
  • Moonlight 3.5/5 - sci-fi
    Einkaspæjari sem er vampíra og notar krafta sína til að leysa ýmis mál.
  • Big Shots ?/5 - drama/gaman
    Fjórir 'Big Shot' karlar sem eru allir félagar þurfa að berjast við eiginkonur sína, hjákonur, frama og vinnufélaga.

Síðan er einn sem ég er ekki búinn að horfa á en er búinn að sækja, og það er Cane .

Aðrir galmir/eldri og góðir:

  • 4400
  • Boston Legal
  • NCIS
  • Heroes
  • Las Vegas
  • Criminal Minds
  • House
  • Smallville
  • Beaty And The Geek
  • Eureka
  • My Name is Earl
  • Psych
  • Greys Anatomy
  • Numb3rs
  • Contender
  • CSI
  • CSI:NY
  • CSI:Miami

Ekki byrjað:

  • 24
  • Desperate Housewifes
  • Amazing Race
  • Lost
  • Top Gear
  • Jericho

« fyrri síða | næsta síða »

Upp aftur